Tilboð
-17%

Electrolux pakkatilboð

Lagerstaða: Til á lager

Viltu fá sent eða sækja til okkar?
Taktu vöruna frá eða fáðu hana senda hvert á land sem er gegn vægu gjaldi. Nánari upplýsingar má nálgast hér

249.950 kr 299.900 kr

EW7F7649U2 Electrolux PerfectCare 700 þvottavél

Framúrskarandi Perfect Care 700 þvottavél sem sameinar snjalla hönnun og þægindi. Hentar meðastórum fjölskyldum þar sem mikið er þvegið og tíminn af skornum skammti. 9 kílóa hleðslugeta, kolalaus hágæðamótor, SoftDrum tromla og TimeManager tímastjórnun gera þessa vél að ákjósanlegum kosti heimilisins. 

Það helsta:

  • XL 9 kg hleðslugeta - meiri afköst en eldri vélar
  • 1400 snúninga stillanlegur vinduhraði 
  • UniversalDose sápuhólf - hægt að nota þvottakodda beint í sápuhólf
  • Kolalaus Silence hágæðamótor - lengri ending, minna slit, hljóðlátari og hraðvirkari
  • TimeManager - þú ræður tímanum! Styttu þvottakerfin og sparaðu allt að 60% tíma.
  • SoftDrum tromla - lágmarkar slit á og verndar viðkvæman fatnað
  • Góð sérkerfi þ.á.m. ull, silki, sængur og 14 mínútna hraðkerfi

Og allt hitt: 

  • LED skjár, snertitakkar og kerfa- og hitaval með einum rofa
  • Active Balance Control mishleðsluskynjun
  • XXL 34 cm hurðarop með allt að 160° opnun
  • FuzzyLogic þvottatækni 
  • WoolMark ullarvottun
  • SoftPlus fyrir mýkingarefni - dreifir betur úr mýkingarefni
  • Barnalæsing á hurð og stjórnborði
  • Þvottakerfi: bómull, bómull eco, gerfiefni, viðkvæmur þvottur, 14 mín hraðkerfi, ofnæmiskerfi, sængur, silki, ull, sportfatnaður, útivistafatnaður, gallaefni, skolun, dæling/vinda

Og það tæknilega:

  • Hljóð 75 dB(A) í þeytivindu
  • Tromlustærð 69 lítrar
  • Orkunýtni A - Sjá nánar um orkumerkingar ESB hér
  • Þvottahæfni A
  • Vinda B
  • H x B x D: 84,7 x 59,6 x 54,7 cm (full dýpt 57,6 cm)

EW7F7649U2 Electrolux PerfectCare 700 þvottavél

Perfect Care 800 varmadælu þurrkari frá Elextrolux. Með upp að 9 kg hleðslugetu og skógrind. Hann er búinn mörgum sérkerfum fyrir nær allar gerðir af þvotti og fer einstaklega vel með þvottinn þökk sé PerfectCare meðhöndlun sem fer gætilega með þvottinn og ofþurrkar hann ekki.  

Það helsta:

  • 9 kg hleðslugeta 
  • Varmadæla - Með nýrri tækni notar þessi þurrkari allt að helmingi minni orku en þurrkarar í orkuflokki B
  • Barkalaus - raka er safnað saman í tank eða dælt út með frárennslisslöngu
  • Rakaskynjari - þú velur þurrkstigið allt frá strauþurru til extra þurrt og þurrkarinn stoppar þegar þvotturinn er orðinn þurr
  • Góð sérkerfi þ.á.m. sængur, sængurföt, gallabuxnakerfi og íþróttafatnaður
  • Gentle Care tækni -  Þurrkarin aðlagar hitastigið eftir efni flíkarinnar til að koma í veg fyrir að ofhita, slíta og krumpa flíkurnar.
  • Skógrind - með skógrindinni getur þú þurrkað skó ásamt viðkvæmar flíkur sem höndla ekki snúninginn. 
  • Gufusótthreinsikerfi - Hér ertu með kefi sem fer í 60°C og er hugsað til að fjarlægja bakteríur og veirur allt að 99,9% sem t.d eru í koddaverinu, sænkurfötum eða flíkum.

Og allt hitt: 

  • LED skjár sem sýnir eftirstöðvar tíma
  • Hljóðmerki - ef þú vilt lætur þurrkarinn þig vita með hljóðmerki þegar þurrki lýkur 
  • XXL hurðarop með allt að 160° opnun - kemur frá verksmiðju með vinstri opnun, hægt að víxla opnun
  • Snýst til beggja átta - losar um þvottinn og minnkar krumpur
  • Öflug krumpuvörn með niðurkælingu á taui og snýr þvottinum reglulega eftir að kerfi lýkur 
  • Framstillt ræsing möguleg  1-20 klukkustundir
  • Barnalæsing á  stjórnborði möguleg
  • Hægt að veljum að tæma vatnstank eða tengja frárennslisslöngu fyrir affallsvatn (fylgir með)
  • Þurrkkerfi: bómull, bómull eco, gerfiefni, viðkvæmur þvottur, strauléttur fatnaður, uppfrískun, skyrtukerfi, sængur/teppi, sængurfatnaður, íþróttafatnaður, gallaefni, blandaður þvottur og 60°C gufukerfi.

Og það tæknilega:

  • Hljóð 66 dB(A)
  • Tromlustærð 118 lítrar
  • Orkunýtni A++ (Orkunotkun 226 kW á ári)
  • H x B x D: 85 x 59,6 x 63,8 cm (full dýpt 66,2 cm)
Vörunúmer: PERFECTCARE800-PAKKI Flokkur: Venjulegar, Barkalausir,